Aš varša veginn til framfara
fimmtudagur, 04 mars 2010
Elín R. Sigurðardóttir og Hermann Örn Ingólfsson frá þróunarsamvinnusviði utanríkisráðuneytisins fjalla um hvað við gerum til að hjálpa öðrum á UNIFEM UMRÆÐUM laugardaginn 6. mars kl. 13:00 í húsnæði Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna að Laugavegi 42.


Hvað gerir Ísland til að hjálpa öðrum?
Elín og Hermann munu segja frá stefnu okkar á sviði þróunarsamvinnu og einstökum verkefnum sem íslensk stjórnvöld styðja. Reynslan sýnir að aðstoð sem grundvallast á þátttöku kvenna er árangursrík leið í þróunarsamvinnu og því er jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna áhersluþáttur í stefnu Íslands í þeim efnum.  


Heilsuvernd mæðra og barna og efnahagslegur styrkur kvenna
Verkefnin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg en íslensk stjórnvöld eru til að mynda í hópi dyggustu stuðningsríkja UNIFEM. Utanríkisráðuneytið styður jafnframt Mannfjöldasjóð SÞ, UNFPA, sem vinnur að eflingu réttinda mæðra og barna til heilsuverndar, ungbarnavernd, dreifingu getnaðarvarna og kynlífs- og fjölskyldufræðslu. Þá styður ráðuneytið dyggilega við fjögurra ára jafnréttisáætlun Alþjóðabankans sem ætlað er að auka efnahagslegan styrk kvenna og þar með almennan hagvöxt í þróunarríkjum.

Hermann Örn Ingólfsson er sviðsstjóri þróunarsamvinnusviðs utanríkisráðuneytisins  en undir það fellur marghliða þróunarsamvinna, friðargæsla og framlag Íslands til neyðar- og mannúðaraðstoðar.  Hermann er með M.Sc. gráðu í verkfræði með sérhæfingu í þróunarsamvinnu frá háskólanum í Álaborg í Danmörku. Hann starfaði fyrir Danida, þróunarsamvinnu Dana, í Kenýa og  á skrifstofu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna hjá Alþjóðabankanum í Washington D.C.  

Elín R. Sigurðardóttir, sérfræðingur á þróunarsamvinnusviði utanríkisráðuneytisins, er með M.A. gráðu í alþjóðasamskiptum frá Boston háskóla og diplóma í hagnýtri jafnréttisfræði frá Háskóla Íslands. Hún starfaði hjá Þróunaramvinnustofnun Íslands á árunum 2000 til 2006, þar af í fjögur ár sem umdæmisstjóri stofnunarinnar í Mósambík. Hún hefur starfað að þróunarmálum innan ráðuneytisins frá desember 2006.

Fyrirlesturinn hefst kl. 13:00 í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Laugarvegi 42.


Fundurinn stendur í klukkutíma, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir