| UNIFEM óskar eftir verkefnastýru/stjóra |
| föstudagur, 08 janúar 2010 | |
|
UNIFEM á Íslandi leitar að starfskrafti í nýtt starf. Um er að ræða hálft starf í sex mánuði sem verður að fullu starfi um miðbik árs 2010. Helstu verkefni: Hugmyndavinna, áætlanagerð og framkvæmd verkefna á sviði fjáröflunar. Auk þessa, aðstoð við önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu UNIFEM. Leitað er að einstaklingi með háskólapróf. Reynsla og/eða þekking af fjáröflun eða kynningar- og markaðsstarfi er æskileg. Áhugi og þekking á þróunarmálum, jafnréttismálum og málstað UNIFEM er kostur. Viðkomandi þarf að vera opinn, framfærinn, hæfileikaríkur í samskiptum, víðsýnn, skipulagður og skapandi. Vinnutími sveigjanlegur. Ferilskrá og kynningarbréf sendist með tölvupósti á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og er umsóknarfrestur til 20. janúar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun febrúar. Nánari upplýsingar um starfið gefur Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi í síma 552-6200 eða á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það . UNIFEM á Íslandi - Laugavegi 42 - 101 Reykjavík
|