Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size

UNIFEM á Íslandi


Forsíða arrow Forsíða arrow Ríkisstjórn Íslands segir NEI við ofbeldi gegn konum. - Nýtt átak á vegum UNIFEM á Íslandi hafið
Ríkisstjórn Íslands segir NEI við ofbeldi gegn konum. - Nýtt átak á vegum UNIFEM á Íslandi hafið Prenta Rafpóstur
föstudagur, 22 ágúst 2008
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRIFA UNDIR! 

 

  segjum_nei_4.jpg

  • Undirskriftaátakið Segjum NEI við ofbeldi gegn konum var opnað á www.unifem.is í dag
  • Utanríkisráðherra, samgönguráðherra og heilbrigðisráðherra undirrituðu áskorunina fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að viðstöddum fjölmiðlum
  • Átakið er hvatning til ríkisstjórna heims að grípa til aðgerða til að binda endi á ofbeldi gegn konum
  • Allir Íslendingar eru hvattir til þess að skrifa undir

„Ef eitthvað skiptir máli i samfélögum heims þá er það að auka réttindi og bæta stöðu kvenna, ekki bara fyrir konur heldur samfélagið allt. Við skulum ekki gleyma því að konur eru ekki bara fórnarlömb heldur einnig gerendur í eigin lífi.  Konur um allan heim taka málin í sínar hendur og þess vegna er svona átak mikilvægt því að það styður þær í því," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á fjölmiðlafundi hjá UNIFEM á Íslandi í morgun um leið og hún hvatti alla ráðherra, þingmenn og almenning til að leggja átakinu lið.

 
Átakið

Í nóvember síðastliðnum fóru höfuðstöðvar UNIFEM af stað með átakið Say NO to Violence against Women í samstarfi við velgjörðarsendiherra sinn Nicole Kidman. Það átak mun standa yfir í eitt ár. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi opnaði í dag sérstaka íslenska heimasíðu tileinkaða átakinu til þess að hvetja Íslendinga til þess að ljá málefninu lið og skrifa nafn sitt undir áskorun til ríkisstjórna heims.

 „Ofbeldi gegn konum er málefni sem getur ekki beðið. Að minnsta kosti ein af hverjum þremur konum er barin, þvinguð til kynlífs eða misnotuð á annan hátt einhvern tímann á lífsleiðinni. Fimmta hver kona verður fórnarlamb nauðgunar eða tilraunar til nauðgunar. Mansal, kynferðisleg áreitni, limlesting á kynfærum kvenna, morð vegna heimanmunds, heiðursmorð og útburður stúlkubarna eru hluti af sama vandamáli, þetta er allt ofbeldi gegn konum. Ekkert land, engin menning, engin kona ung eða gömul, er ónæm fyrir þessari plágu. Alltof oft er komist upp með þessa glæpi án þess að refsað sé fyrir og ofbeldismennirnir ganga lausir. " sagði Regína Bjarnadóttir stjórnarformaður UNIFEM á Íslandi á blaðamannafundi í dag þegar hún vakti máls á mikilvægi þess að ríkisstjórnir heims gripu til aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi.

Markmið átaksins er að fá sem flesta Íslendinga til þess að skrifa undir áskorunina Segjum NEI við ofbeldi gegn konum á heimasíðu UNIFEM á Íslandi - www.unifem.is. Átakið mun standa yfir í 12 vikur og lýkur þann 6. nóvember næstkomandi. Þá munu undirskriftirnar verða sendar formlega til höfuðstöðva UNIFEM í New York, en heimsátakinu lýkur þann 25. nóvember á baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi.

 

Því fleiri undirskriftir - því sterkari málstaður

Þetta átak UNIFEM - Segjum NEI við ofbeldi gegn konum - hvetur fólk til þess að setja nafn sitt á blað sem yfirlýsingu um stuðning almennings og ákall til ráðafólks á heimsvísu um að gera það að forgangsverkefni að binda endi á ofbeldi gegn konum. Því fleiri nöfnum sem við söfnum því sterkari er málstaðurinn.

 

Það hefur sýnt sig að sterkur pólitískur vilji til þess að binda endi á ofbeldi gegn konum er eitt sterkasta vopnið í baráttunni. Í flestum ríkjum heims gæti bætt lagasetning, framkvæmd laga, eftirfylgni og réttlátara dómskerfi minnkað ofbeldi gegn konum til muna. Víðtækur stuðningur við átakið mun skila aukinni vitund um mikilvægi þess að berjast gegn ofbeldi gegn konum, hvað ríkisstjórnir heims geta gert til þess að leggja sitt af mörkum og aukinni vitund um að til séu raunverulegar lausnir sem munu skila sér í minnkandi ofbeldi gegn konum.
 
Fiðrildafréttir

Ljóðið - örmynd

ormynd_ljodid.jpg

Dansinn - örmynd

ormynd_dansinn.jpg

Púsluspilið - örmynd

ormynd_pusluspil.jpg

Málverkið - örmynd

ormyndir_malverk.jpg

Tímarit UNIFEM 2008

Tímarit UNIFEM 2008

UNIFEM á Íslandi | Laugavegi 42 - Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 101 Reykjavík | Sími 552 6200 | unifem@unifem.is