Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size

UNIFEM á Íslandi


Forsíða arrow Um UNIFEM
Hvað er UNIFEM? Prenta Rafpóstur

UNIFEM (United Nations Development Fund for Women) er Þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna.

UNIFEM fer með umboð SÞ til að vinna að jafnrétti kynjanna og stuðla að því að stefnumótun í þróunarstarfi taki mið af jafnréttissjónarmiðum og réttindum kvenna í samræmi við alþjóðleg markmið.

UNIFEM veitir tæknilegan og fjárhagslegan stuðning til verkefna sem ætlað er að efla réttindi kvenna, þátttöku þeirra í stjórnmálum og efnahagslegt sjálfstæði.


Hlutverk UNIFEM er að:

  • Styðja frumkvæði og nýjungar í aðferðum til að bæta stöðu kvenna í samræmi við landsstefnur og alþjóðleg markmið.
  • Stuðla að aðkomu og þátttöku kvenna í þróunarsamvinnu.
  • Vera brautryðjandi á sviði kynjajafnréttis í alþjóðlegri þróunarsamvinnu SÞ.

Starfi UNIFEM má skipta í þrjá málaflokka

1. Auka efnahagslegt öryggi og réttindi kvenna.
2. Draga úr ofbeldi gegn konum og útbreiðslu HIV/alnæmis meðal kvenna og stúlkna.
3. Auka kynjaréttlæti í lýðræðislegri uppbyggingu ríkja á friðar- sem og ófriðartímum.


Þróunarsjóðurinn er eingöngu myndaður með frjálsum fjárframlögum. Hæstu framlögin koma frá aðildaríkjum SÞ en auk þeirra rennur það fjármagn sem landsfélög UNIFEM afla til þróunarsjóðsins. Sjóðurinn hefur endurtekið verið nefndur best rekni þróunarsjóðurinn innan SÞ. Er þar annars vegar horft til fjármálastjórnunar stofnunarinnar og hins vegar skilvirkni þróunarverkefna á hennar vegum.

UNIFEM var stofnað árið 1976 í kjölfar fyrstu heimsráðstefnu SÞ um málefni kvenna. Sjóðnum var upphaflega ætlað að starfa í þau 10 ár sem kvennaáratugur SÞ stóð yfir, eða frá 1975 til 1985. Undir lok þessa tímabils var ljóst að sjóðnum hafði með takmörkuðum fjármagni tekist að auka þekkingu og skilning á málefnum kvenna, stuðla að bættum lífskjörum þeirra og auknum réttindum. 

UNIFEM nýtur sívaxandi álits og er nú ein af virtustu stofnunum innan Sameinuðu þjóðanna en UNIFEM heyrir undir Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP). Aðalstöðvar UNIFEM eru í New York en starfsfólk, sjálfboðaliðar og velunnarar starfa um allan heim. Þá annast svæðisskrifstofur skipulagningu og eftirlit með verkefnum í þeim löndum sem þiggja aðstoð UNIFEM. Tólf verkefnastjórar í öllum heimsálfum vinna sem tengiliðir á milli þeirra sem þiggja aðstoðina og skrifstofu UNIFEM og fylgjast með að fjármunum sé vel varið. Verkefni UNIFEM eru unnin í samræmi við svæðisbundinn veruleika í Afríku, Asíu og Kyrrahafinu, Suður Ameríku og Karíbaeyjum, Mið- og Austur Evrópu og fyrrverandi Sovétlýðveldum.

Tíu ráðgjafar á vegum UNIFEM sjá til þess að innan stofnana Sameinuðu Þjóðanna sé ávallt skoðað hvaða áhrif ákvarðanir, áætlanir og stefnumótanir hafi á líf og réttindi kvenna þ.e. þeir vinna að samþættingu jafnréttissjónarmiða við starfssemi á vegum SÞ. Á vegum UNIFEM, UNDP og sjálfboðaliða innan Sameinuðu Þjóðanna vinna 16 sérfræðingar að því að fylgjast með því að stjórnvöld virði framkvæmdaáætlun Sameinuðu Þjóðanna (Platform for Action) sem samþykkt var á kvennaráðstefnunni í Peking árið 1995 og endurskoðuð á aukaallsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna í júní 2000.

Frjáls félagasamtök starfa í 16 löndum að því að vekja athygli almennings á þörfum kvenna í fátækum löndum og starfi UNIFEM, afla fjár til starfsins og hvetja ríkisstjórnir sínar til að taka þátt í því. UNIFEM á Íslandi er eitt slíkra samtaka.

 
Fiðrildafréttir

Ljóðið - örmynd

ormynd_ljodid.jpg

Dansinn - örmynd

ormynd_dansinn.jpg

Púsluspilið - örmynd

ormynd_pusluspil.jpg

Málverkið - örmynd

ormyndir_malverk.jpg

Tímarit UNIFEM 2008

Tímarit UNIFEM 2008

UNIFEM á Íslandi | Laugavegi 42 - Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 101 Reykjavík | Sími 552 6200 | unifem@unifem.is