Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size

UNIFEM á Íslandi


Forsíða arrow Skjalasafn
Skjalasafn
Afmælisrit UNIFEM á Íslandi 2009 Prenta Rafpóstur
Afmælisrit UNIFEM á Íslandi tmarit_2009_loka
 
Fiðrildafréttir Prenta Rafpóstur
2tlubla
 
Ársskýrsla UNIFEM 2007 Prenta Rafpóstur
Ársskýrsla UNIFEM 2007
 
UNIFEM-UMRÆÐUR Prenta Rafpóstur

Næstkomandi laugardag 5. janúar mun UNIFEM á Íslandi halda fyrsta fund sinn í fundarröðinni UNIFEM-UMRÆÐUR. Markmið fundanna er að varpa ljósi á stöðu kvenna í þróunarríkjum og á stríðshrjáðum svæðum sem og að kynna starf UNIFEM. Fundurinn sem stendur í um klukkutíma verður haldinn í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna og hefst kl. 13. Fundarstjóri verður Hlín Agnarsdóttir.

Á fyrsta fundinum munu tvær íslenskar starfskonur UNIFEM á alþjóðavettvangi segja frá starfi sínu. Hildur Fjóla Antonsdóttir mann- og kynjafræðingur mun varpa ljósi á stöðu kvenna í karabíska hafinu en hún starfar á svæðisskrifstofu UNIFEM á Barbados. Guðrún Sif Friðriksdóttir BA í mannfræði og sérfræðingur á sviði hnattvæðingar starfar í Líberíu og mun fjalla um konur og  jafnrétti í V-Afríku. Þær munu báðar beina sjónum sínum að ofbeldi gegn konum í erindum sínum og skoða hvaða áhrif ofbeldi hefur á líf kvenna.

Öll velkomin!

 
Tímaritið komið út! Prenta Rafpóstur

Þann 23. nóvember siðastliðinn kom út Tímarit UNIFEM á Íslandi 2007. Meginefni tímaritsins að þessu sinni er kynbundið ofbeldi. Minni áhersla er lögð á fréttir af starfsemi landsnefndarinnar en áður en þá umfjöllun má nálgast í ársskýrslu nefndarinnar. Leitast var við að hafa vel læsilegar og skýrar greinar í stað fræðilegrar umræðu en vonast er til að blaðið gefi tilfinningu fyrir nayðsyn og árangri starfsemi UNIFEM. Ritstjóri tímaritsins að þessu sinni var Andrés Ingi Jónsson en fjölmargir aðrir pennar komu að gerð blaðsins. Nálgast má netútgáfu blaðsins hér vinstra megin á síðunni en einnig er hægt að fá prentuð eintök á skrifstofu UNIFEM að Laugavegi 42.

 
Segjum NEI við ofbeldi gegn konum! Prenta Rafpóstur

Nicole Kidman góðgerðasendiherra UNIFEM vekur í eftirfarandi bréfi athygli á átaki sem er að fara af stað á vegum UNIFEM. Við hvetjum alla til að taka þátt og skrifa undir á síðunni: http://www.saynotoviolence.org/

- - -   

Góðan daginn,

Talið er að ein af hverjum þremur konum sé misnotuð eða beitt ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni. Þetta er hræðilegt mannréttindabrot. En við getum bundið enda á þetta.

Sem góðgerðasendiherra Þróunarsjóðs kvenna á vegum Sameinuðu þjóðanna, UNIFEM, bið ég þig um að „segja NEI við ofbeldi gegn konum" með því að taka þátt í hnattrænu stuðningsátaki okkar á internetinu. Víðtækur stuðningur fólks í öllum löndum kemur til með að senda sterk skilaboð til ríkisstjórna um allan heim um að afnám ofbeldis gegn konum skuli og verði að vera forgangsverkefni.

Vinsamlegast hjálpaðu okkur að sýna fram á að hundruð þúsundir, jafnvel milljónir, karla og kvenna krefjast aðgerða og úrræða sem fyrirbyggja, vernda og veita þjónustu fyrir þolendur ofbeldis. Hvernig getur þú gert það? Með því að bæta nafni þínu í bókina okkar sem og með því að breiða út orðið til vina, fjölskyldu og vinnufélaga svo þau geti einnig tekið þátt.

Ég gerðist góðgerðasendiherra UNIFEM til þess að ljá konum og stúlkum rödd sem þurft hafa að sæta ofbeldi og misnotkun. Það er ástæða þess að ég var sú fyrsta sem undirritaði áskorunina í þessari mikilvægu herferð. Vinsamlegast bættu þínu nafni við mitt. Það er auðvelt og fljótlegt. Sérstök vefsíða hefur verið búin til á slóðinni http://www.saynotoviolence.org/ þar sem hægt er að skrifa undir.

Því fleiri nöfnum sem við söfnum því sterkari verða þau skilaboð sem við sendum út um að afnám ofbeldis gegn konum skuli sett efst á framkvæmdalista og geri heiminn öruggari fyrir konur. Takk fyrir að taka þátt með mér í þessu verkefni.

 

 nksignature.gif

 

 

 

 

 

Nicole Kidman

Góðgerðasendiherra UNIFEM

 
Ríflega 800 þúsund krónur til styrktar UNIFEM Prenta Rafpóstur

Ríflega 800 þúsund krónur söfnuðust á tvennum tónleikum hins heimsfræga fiðluleikara Gilles Apap í Grafarvogskirkju 7. okóber sl.  Allur aðgangseyrir tónleikanna rann í Styrktarsjóð UNIFEM til afnám ofbeldis gegn konum. Tónleikarnir  voru síðustu tónleikarnir í röð ferna tónleika sem Gilles hélt í þessari Íslandheimsókn sinni, sem Hjörleifur Valsson fiðluleikari hafði veg og vanda af að skipuleggja. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. var styrktaraðili tónleikanna og Ingunn Wernersdóttir sérstakur verndari þeirra. 

UNIFEM á Íslandi þakkar aðstandendum tónleikanna fyrir dýrmætan stuðning.

 
Dönsuðu zumba og söfnuðu 400 þúsund krónum Prenta Rafpóstur

Um 200 manns tóku þátt í hóptíma sem Hreyfing stóð fyrir í Valsheimilinu 3. nóvember sl. og dönsuðu zumba við suðræna tónlist til styrktar UNIFEM. Glitnir styrkti viðburðinn en bankinn er einn af aðalstuðningsaðilum UNIFEM.

Allur ágóði af viðburðinum, 400.000 krónur, rennur til Styrktarsjóðs UNIFEM til afnáms ofbeldis gegn konum, sérstaklega eyrnamerkt verkefnum í Suður-Ameríku.

UNIFEM á Íslandi þakkar Hreyfingu, Glitni og öllum þeim sem mættu í zumbatímann í Vallheimilinu fyrir dýrmætan stuðning.

 
Meira...
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 58 af 79
Fiðrildafréttir

Ljóðið - örmynd

ormynd_ljodid.jpg

Dansinn - örmynd

ormynd_dansinn.jpg

Púsluspilið - örmynd

ormynd_pusluspil.jpg

Málverkið - örmynd

ormyndir_malverk.jpg

Tímarit UNIFEM 2008

Tímarit UNIFEM 2008

UNIFEM á Íslandi | Laugavegi 42 - Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 101 Reykjavík | Sími 552 6200 | unifem@unifem.is