|
Dagskrá 16 daga átaksins |
|
|
|
|
Stefnumót við stjórnmálaflokka - Launamisrétti kynjanna |
|
|
Launamisrétti kynjanna – úr sögunni árið 2070 eða hvað?
Ellefu kvennasamtök efna til morgunverðarfundar með stjórnmálaflokkunum þriðjudaginn 17. apríl kl. 8.00-9.30 á Grand hótel Reykjavík. Til umræðu verður launamisrétti kynjanna og aðgerðir til að útrýma því. Erindi flytja Lilja Mósesdóttir hagfræðingur og Þórey Laufey Diðriksdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Á eftir sitja fulltrúar stjórnmálaflokkanna fyrir svörum. Fundarstjóri Tatjana Latinovic.
Fyrir tæpum tveimur árum söfnuðust tugþúsundir kvenna saman í miðborg Reykjavíkur til að minnast þess að 30 ár voru liðin frá kvennafrídeginum 24. okt. 1975 og til að krefjast launajafnréttis kynjanna. Í kjölfar kvennaársins 1975 var gerð könnun á launamun kynjanna sem leiddi í ljós að konur í þéttbýli höfðu að meðaltali 45% af launum karla. Nú rúmum 30 árum síðar hafa konur að meðaltali um 62% af launum karla þrátt fyrir að hafa bætt við sig mikilli menntun og vinna sífellt lengri vinnudag. Með sama áframhaldi verður launabilinu útrýmt upp úr 2070. Þolinmæði okkar er á þrotum, við ætlum ekki að bíða svo lengi.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Frá hugsjónum til framkvæmda: Málþing um þróunarsamvinnu |
|
|
|
Föstudaginn 23. mars n.k. standa átta sjálfstæð mannúðarsamtök á Íslandi fyrir málþingi í Norrænahúsinu um málefni þróunarsamvinnu sem ber yfirskriftina Frá hugsjónum til framkvæmda. Samtökin eru: Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, SOS-barnaþorp, UNICEF á Íslandi, UNIFEM á Íslandi og ABC barnahjálp.
Þróunarsamvinna efnaðra þjóða við þær fátækari hefur fengið aukið vægi á undanförnum árum og sífellt fleiri aðilar á Íslandi láta sig málaflokkinn varða. Málþinginu 23. mars er ætlað að vera skref í að vekja athygli á framlagi samtakanna til þróunarsamvinnu og skapa faglega umræðu um málefnið og hið flókna umhverfi sem mannúðarsamtök hérlendis og um heim allan starfa í. Samtökin átta búa yfir mikilli reynslu og þekkingu sem þau vilja koma á framfæri, annars vegar sín á milli og hins vegar til almennings, háskólasamfélagsins og hins opinberra.
Fyrirlesarar á málþinginu eru starfsmenn samtakanna auk þess sem sérstakur gestur, Brian Pratt, framkvæmdastjóri INTRAC (International NGO Training and Research Centre í Oxford á Englandi) flytur erindi um hvernig samstarfi stjórnvalda og félagasamtaka í þróunarsamvinnu er háttað í öðrum Evrópulöndum. Í lok málþingsdags verða pallborðsumræður og tækifæri til fyrirspurna.
Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands setur málþingið og fundarstjóri er Þórir Guðmundsson ritstjóri visir.is
Málþingið sendur yfir frá kl. 9:00 - 16:00. Allir áhugamenn um málefni þróunarsamvinnu eru hjartanlega velkomnir og er aðgangur ókeypis. Í hádegi verður í boði léttur og framandi hádegisverður. Kynning á starfi mannúðarsamtakanna átta verður í anddyri Norræna hússins.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Stefnumót við stjórnmálaflokka - Kynbundið ofbeldi |
|
|
|
Miðvikudaginn 21. febrúar verður haldinn morgunverðarfundur á Grand hótel og hefst hann kl. 8.00. Til umræðu er kynbundið ofbeldi og aðgerðir gegn því með fulltrúum stjórnmálaflokkanna.
Örstutt erindi flytja Guðrún Jónsdóttir Stígamótum, Ása Ólafsdóttir lögfræðingur og Kristín Ástgeirsdóttir forstöðumaður RIKK. Á eftir verða pallborðsumræður með fulltrúum stjórnmálaflokkanna. Fundarstjóri verður Guðrún Agnarsdóttir læknir.
Framundan eru kosningar til Alþingis. Hver er stefna stjórnmálaflokkanna hvað varðar kynbundið ofbeldi og aðgerðir gegn því? Á að samþykkja nýjan kafla um kynferðisofbeldi eins og hann liggur fyrir Alþingi en samkvæmt honum er kaup og sala á vændi löglegt? Hvað líður framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn kynferðisofbeldi? Hvað er hægt að gera til að bæta réttarkerfið? Hvernig á að bæta rannsókn kynferðisbrotamála þannig að þau skili sér inn í réttarkerfið? Hvernig má styrkja stöðu brotaþola enn betur? Á að hækka lágmarksrefsingar í kynferðisbrotamálum? Hvað um fyrirbyggjandi aðgerðir?
Morgunverðurinn kostar 1400 kr. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Að fundinum standa: Femínistafélag Íslands, Kvennaathvarfið, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Neyðarmóttaka vegna nauðgana, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Stígamót og UNIFEM á Íslandi.
|
|
|
16 dagar í 16 ár: Eflum mannréttindi-stöðvum ofbeldi gegn konum |
|
|
|
Þann 25. nóvember verður 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 16 sinn út um allan heim. 16 daga átak hefur í 16 ár unnið að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa fórnarlömbum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim.
Yfirskrift átaksins er í ár : 16 dagar Í 16 ár: eflum mannréttindi - stöðvum ofbeldi gegn konum. Átakið í ár er tileinkað mannréttinafrömuðum sem hafa átt þátt í 16 daga átaki og þeim sem hafa þurft að þola ofsóknir og ofbeldi vegna starfs síns að jafnréttismálum og jafnvel látið lífið. Í ár verður litið yfir farinn veg og þess minnst hvaða árangur hefur náðst í baráttunni gegn kynbundu ofbeldi um allan heim ásamt því að endurskoða hvaða leiðir eru best fallnar til að halda baráttunni áfram.
Á fjórða tug íslenskra samtaka og stofnana standa sameiginlega að átakinu hér á landi í ár og markar morgunverðarfundur UNIFEM föstudaginn 24. nóvember upphafið á átakinu , en ákveðið var að hafa morgunverðarfundinn degi fyrr þar sem 25. nóvember ber upp á laugardag í ár. Í 16 daga mun fjöldi aðila og samtaka um sem lætur sig málefnið varða standa fyrir margvíslegum viðburðum í því augnamiði að vekja athygli almennings á orsökum og afleiðingum kynbundins ofbeldis.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Svona fögnum við 19. júní 2006 |
|
|
|
Hinn 19. júní árið 1915 fengu konur kosningarétt. Af því tilefni ætlum við að mála bæinn bleikan mánudaginn 19. júní næstkomandi. Við hvetjum alla sem vilja sýna stuðning við jafnrétti í verki til að gera eitthvað bleikt þennan dag. Ef þú styður jafnrétti getur þú tekið þátt með ýmsu móti.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
UNIFEM skorar á saumaklúbba um allt land |
|
|
|
Flestir saumaklúbbar eru þekktari fyrir kökuát en íþróttaiðkun en nú gefst kjörið tækifæri til að breyta út af vananum. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á yfir 100 stöðum víðs vegar um landið og erlendis laugardaginn 10. júní. UNIFEM og ÍSÍ skora á saumaklúbba um allt land að skrá sig til leiks, njóta hressandi samveru og láta gott af sér leiða á sama tíma.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ |
|
|
  Í maí skrifuðu forsvarsmenn Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ og UNIFEM á Íslandi undir samstarfssamning vegna hlaupsins hinn 10. júní næstkomandi. Í ár er yfirskrift Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ Hvert skref skiptir máli. Markmið samstarfs ÍSÍ við UNIFEM á Íslandi er að vekja athygli á starfi UNIFEM í þágu kvenna, sérstaklega í Afganistan, og hvetja íslenskar konur til að sýna samstöðu með mannréttindum kvenna um leið og þær efla eigin heilsu. 50 kr. af hverjum seldum bol mun renna til UNIFEM auk þess sem UNIFEM mun standa fyrir armbandasölu í tengslum við hlaupið. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ mun fara fram á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis laugardaginn 10. júní næstkomandi. Þetta er 17. árið sem hlaupið fer fram en árlega taka um 18.000 konur á öllum aldri þátt. Meginmarkmið Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar. Konur eru hvattar til að vera á iði ekki aðeins þennan eina dag heldur sem flesta aðra daga ársins. Allar konur geta tekið þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á sínum forsendum, óháð aldri og líkamlegri getu. UNIFEM armböndin verða m.a. seld í verslunum Body Shop í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri, í versluninni Iðu í Lækjargötu og á Barnum, Laugavegi 22. Armböndin eru skærbleik og sumarleg og kosta einungis 500 krónur. Þau eru seld í fjáröflunarskyni fyrir starfsemi UNIFEM í Afganistan. |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 12 af 24 |