Þegar Vicky Bam, þá 32 ára, gekk með sitt þriðja barn
greindist hún með HIV veiruna. Barnið var einnig smitað og lést aðeins árs
gamalt. Þá var eiginmaður Vicky einnig látinn en hann hafði greinst á sama
tíma. Vicky, sem er frá Namibíu, þurfti að takast á við sorgina en einnig þá
skömm sem fylgir því að vera HIV smituð. Jafnvel þótt fimmtungur þjóðarinnar sé
HIV smitaður er málefnið umlukið þögn. HIV breiðist nú hratt út meðal ungra
kvenna í Afríku og eru þær meirihluti smitaðra. Vicky lét ekki deigan síga og
ákvað að stíga fram og tala opinberlega um smit sitt. Hún er nú komin til
Íslands til þess að segja frá baráttu sinni fyrir hönd HIV smitaðra kvenna í
Namibíu.
Laugardaginn 20. mars
kl. 13 bjóða UNIFEM á Íslandi og Kríurnar - þróunarsamtök í þágu kvenna í
Afríku til fundar með Vicky Bam í Miðstöð
Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42, 2. hæð. Fundurinn stendur yfir í
klukkutíma.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Aðalfundur
þriðjudagur, 16 mars 2010
Aðalfundur UNIFEM á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 30. mars 2010, kl. 20:00 í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Laugavegi 42.
Dagskrá:
Setning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Stjórn landsnefndar skýrir frá viðfangsefnum félagsins
og rekstri þess á liðnu starfsári.
Rekstrar- og efnahagsreikningar landsnefndar fyrir
liðið starfsár kynntir og lagðir fram til samþykktar.
Ákvörðun um félagsgjöld fyrir starfsárið.
Kjör stjórnar og formanns.
Kjör endurskoðanda.
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni og
tillögur sem löglega eru upp bornar.
Fundarslit.
Allir félagar í UNIFEM á Íslandi geta gefið kosta á sér til
stjórnarsetu eða formennsku. Stjórn félagsins hvetur alla áhugasama til að
bjóða fram krafta sína. Framboð skulu hafa borist Steinunni Gyðu- og
Guðjónsdóttur, framkvæmdastýru UNIFEM á Íslandi, í síma 552-6200 eða með
tölvupósti
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
fyrir kl.
12 á hádegi föstudaginn 26. mars 2010.
Við minnum á að til þess aðhafa kosningarétt á
aðalfundi þarf samkvæmt lögum félagsins að hafa greitt félagsgjöld tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. í dag þriðjudaginn 16. mars. Þeir félagar sem ekki
fengu senda gíróseðla í heimabanka sinn (þeir sem skráðu sig í félagið eftir 1.
september) geta greitt kr. 3000 inn á reikning UNIFEM á Íslandi 0101-26-010902 kt. 551090-2489. Vinsamlegast setjið kennitölu greiðanda í skýringu.
Stjórn UNIFEM á Íslandi
Að varða veginn til framfara
fimmtudagur, 04 mars 2010
Elín
R. Sigurðardóttir og Hermann Örn Ingólfsson frá þróunarsamvinnusviði
utanríkisráðuneytisins fjalla um hvað við gerum til að hjálpa öðrum á UNIFEM
UMRÆÐUM laugardaginn 6. mars kl. 13:00 í húsnæði Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna
að Laugavegi 42.
Hvað
gerir Ísland til að hjálpa öðrum?
Elín og Hermann munu segja frá stefnu okkar á sviði
þróunarsamvinnu og einstökum verkefnum sem íslensk stjórnvöld styðja. Reynslan
sýnir að aðstoð sem grundvallast á þátttöku kvenna er árangursrík leið í
þróunarsamvinnu og því er jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna áhersluþáttur
í stefnu Íslands í þeim efnum.