Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size

UNIFEM á Íslandi


Forsíða
UNIFEM heimsækir Borgarnes! Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 27 apríl 2010

unifem_facebook.jpgUNIFEM er á ferð um landið og næst er förinn heitið í Borgarnes!

Boðið er til skemmtunar og kynningar á starfsemi UNIFEM í Landnámssetri Íslands, Borgarnesi, fimmtudaginn 29. apríl kl. 20. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.

Mæðgurnar Ingibjörg Ingadóttir og Katerína Inga Antonsdóttir taka nokkur lög.
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi segir frá starfi UNIFEM.
Lína Mazar heldur í fyrsta skipti erindi á íslensku um líf sitt sem flóttakona í Írak.
Útvarpskonan Margrét Erla Maack ásamt Bollywood-danshópi sýnir dans og kennir áhugasömum nokkur spor!
Sigríður Margrét Guðmundsdóttir kynnir

Við hlökkum til að sjá þig!
UNIFEM á Íslandi

 
UNIFEM heimsækir Ísafjörð! Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 20 apríl 2010

unifem_icon.jpgViltu hafa fiðrildaáhrif? Vissir þú að þitt framlag, hversu lítið sem það er, skiptir máli? Saman getum við breytt lífi kvenna og barna um allan heim til hins betra. UNIFEM er vettvangurinn sem hjálpar þér að leggja hönd á plóg.

Boðið er til skemmtunar og kynningar á starfsemi UNIFEM í Hömrum, sal Tónlistarskólans á Ísafirði, miðvikudaginn 21. apríl kl. 20. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, kynnir starf UNIFEM.

Ágústa Gísladóttir segir frá starfi sínum með konum í nokkrum löndum Afríku.

Kvennakór Ísafjarðar og Stúlknakór Tónlistarskóla Ísafjarðar taka nokkur lög undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur.

Ingunn Ósk Sturludóttir syngur

Guðrún Jónsdóttir les ljóð

"Lista"konurnar Albertína Elíasdóttir, Arna Lára Jónsdóttir og Guðfinna Hreiðarsdóttir sjá um kaffiveitingar í hléi.

Kynnir verður Ylfa Mist Helgadóttir.

Á heitt á prjónunum verður opnuð sýning á sjölum í tengslum við kynningu UNIFEM klukkan 16.00 mánudaginn 19. apríl sem stendur út vikuna.

Við hlökkum til að sjá þig!

UNIFEM á Íslandi

 

 
Af konum og börnum í Zimbabve og Tógó Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 06 apríl 2010
tg.jpgMagnfríður Júlíusdóttir ræðir um kvennastýrð heimili í Zimbabve og Alda Lóa Leifsdóttir ræðir um aðstæður ungs fólks í Tógó og starfsemi Sóleyjar og félaga í þágu heimilis systur Victorine á Unifem umræðum, laugardaginn 10. apríl kl. 13:00 í húsnæði Miðstöðvar SÞ að Laugavegi 42. 

Fundurinn stendur í klukkutíma, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

KVENNASTÝRÐ HEIMILI Í ZIMBABVE

Farandverkamennska, aukning hjónaskilnaða og minnkandi öryggisnet í kringum ekkjur eru þættir sem beint hafa sjónum að kvennastýrðum heimilum í sunnanverðri Afríku og víðar.

Rætt verður um fjöbreytileikann meðal þessara kvenna og dregin upp mynd af lífshlaupi, aðstæðum og framtíðarsýn nokkurra þeirra sem rætt var við í rannsókn á þróun og lífsviðurværi kvennastýrðra heimila í austurhluta Zimbabve.

Magnfríður fjallar um þróun kvennastýrðra heimila í samhengi við samfélagsþróun og kvenréttindabaráttu eftir sjálfstæði Zimbabve árið 1980. Fjölgun kvennastýrðra heimila er gjarnan tengd kvenvæðingu fátæktar í fræðilegri umræðu og stefnumótun í þróunarsamvinnu. 

Magnfríður Júlíusdóttir er lektor í landfræði við Háskóla Íslands, en hún gerði umfangsmikla rannsókn á kvennastýrðum heimilum í Zimbabve.

BÖRN Í TÓGÓ OG VERNDARVÆNGUR SYSTUR VICTORINE

Tógó er er lítið land í vestur-Afríku, en það er eitt fátækasta land í heimi. Í landamærabænum Aneho býr systir Victorine, tógósk nunna, en í kringum hana hefur myndast samfélag barna og ungs fólks sem hún hefur tekið undir sinn verndarvæng. Skjólstæðingar hennar eru bæði stúlkur og drengir, hvítvoðungar og fólk á þrítugsaldri, sem ekki hafa í önnur hús að venda. Þá styður hún við skólagöngu skjólstæðinga sinna og liðsinnir þeim. Alda Lóa segir okkur einnig frá íslenska félaginu Sóley og félagar en markmið þess er að styðja við starfsemi systur Victorine.

Alda Lóa Leifsdóttir  er ein aðstandenda að Sóleyju og félögum, sem styður við starf systur Victorine í Tógó. Alda Lóa er grafískur hönnuður og fréttaljósmyndari.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 7 - 9 af 102
Fiðrildafréttir

Ljóðið - örmynd

ormynd_ljodid.jpg

Dansinn - örmynd

ormynd_dansinn.jpg

Púsluspilið - örmynd

ormynd_pusluspil.jpg

Málverkið - örmynd

ormyndir_malverk.jpg

Tímarit UNIFEM 2008

Tímarit UNIFEM 2008

UNIFEM á Íslandi | Laugavegi 42 - Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 101 Reykjavík | Sími 552 6200 | unifem@unifem.is