UNIFEM á Íslandi leitar að jákvæðu og dugmiklu fólki til að
sinna fjáröflun og kynningarstörfum fyrir samtökin í sumar. Starfið felst í því
að kynna starf UNIFEM með götukynningu og úthringingum og bjóða fólki að gerast
styrktaraðilar. Um er að ræða hálft starf sem fer að mestu leiti fram seinni
part dags og um kvöld. Viðkomandi þarf að vera opinn, framfærinn, áreiðanlegur
og vera sjálfstæður í vinnubrögðum. Áhugi og þekking á þróunarmálum,
kvenréttindum og málstað UNIFEM er kostur.
Umsóknarfrestur til 20. maí 2010.
Áhugasamir umsækjendur sendi ferilskrá og umsókn á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
. Nánari upplýsingar í síma
552-6200.
Í
lokaumræðum vetursins býður UNIFEM þér í bíó en dagskráin hefst með sýningu
heimilda-myndarinnar Börn til sölu
eftir Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur fréttakonu. Myndin fjallar um þær tugþúsundir
kambódískra stúlkna sem seldar eru mansali á hverju ári. María Sigrún svarar
spurningum að sýningu lokinni og þá tekur Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
framkvæmdastýra UNIFEM við og segir okkur af starfi UNIFEM í Kambódíu og
nýlegri ferð sinni þangað.
Sýning á
heimildarmyndinni Börn til sölu hefst
kl. 12 en umræður taka við kl. 13
Hvort tveggja í
húsnæði Miðstöðvar SÞ að Laugavegi 42, sunnudaginn 2. maí.
Börn
til sölu
Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur
þekkja flestir úr sjónvarpsfréttum RÚV, en hún gerði einnig heimildarmyndina Börn til sölu sem kom út í fyrra. Á
hverju ári eru tugþúsundir ungra, kambódískra stúlkna seldar í þrælkunarvinnu,
kynlífsánauð og vændi. Í myndinni er fylgst með lífi nokkurra stúlkna, rætt við
stúlkur sem eru í kynlífsánauð, stúlkur sem tekist hefur að bjarga og
hjálparstarfsmenn á svæðinu. Leitað er svara við spurningum eins og: Hvað fær
foreldri til að selja börnin sín, hvernig fer mansalið fram og hvað er verið að
gera til þess að stöðva þessa þróun. Sjá stiklu úr myndinni hér.
UNIFEM
í Kambódíu
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi heimsótti í fyrrasumar skrifstofu UNIFEM í
Kambódíu. Í ferðinni kynntist hún þeim verkefnum sem UNIFEM vinnur þar í landi
til að bæta stöðu og réttindi kvenna. Steinunn mun segja frá kvennaathvarfi
fyrir þolendur ofbeldis, samtökum sem vinna að betra lífi fyrir HIV smitaðar
konur og fræðslu fyrir farandverkakonur um réttindi sín.