Við hjá UNIFEM á Íslandi viljum komaá framfæri þökkum okkar til allra þeirra
fyrirtækja sem hafa aðstoðað okkur við að koma Systralaginu af stað með því að
gefa þjónustu sína.
Það eru
eftirtaldir aðilar:
Pipar auglýsingastofa
Björg
Vigfúsdóttir ljósmyndari
Fókus -
Skiltagerð og auglýsingastofa
Birtingur
útgáfufélag
Morgunblaðið
Vísir.is
Já.is
Vodafone
Bros
Við þökkum einnig þeim
fjölmörgu einstaklingum sem hafa gefið sinn bút í teppið sem nú er orðið að
Systralaginu.
Jóhönnurnar eru fyrstu UNIFEM-systurnar
fimmtudagur, 18 júní 2009
Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra og Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngstjarna gerðust á
þriðjudaginn fyrstu UNIFEM-systurnar með því að skrifa undir styrktarsamkomulag
um mánaðarleg framlög til UNIFEM á Íslandi. Þar með var átakinu Systralagið hleypt
af stokkunum en átakið miðar að því að hvetja Íslendinga til að standa með
systrum sínum víða um heim og uppræta ofbeldi, fátækt og óréttlæti.
Munu götukynnar frá UNIFEM á
Íslandi vera á götum Reykjavíkur í sumar að safna mánaðarlegum styrktaraðilum
og hvetjum við fólk til að taka þeim vel. Einnig er hægt að skrá sig í
Systralagið með því að smella hér.
Í verkefninu Systralagið
leggur UNIFEM á Íslandi áherslu á systralag og samstöðu kvenna þvert á
landamæri og menningarheima. UNIFEM vill hvetja Íslendinga til að standa með
systrum sínum víðsvegar um heim og efla þær í viðleitni sinni til að skapa sér,
börnum sínum og samfélagi betri framtíð. Samstaða kvenna hefur skilað
umtalsverðum breytingum á heiminum frá því kvennabarátta hófst, þessum
breytingum viljum við fagna um leið og við hvetjum til áframhaldandi vinnu að
bættu samfélagi fyrir konur.
Alþjóðleg ráðstefna um konur, frið og öryggi
mánudagur, 15 júní 2009
Á föstudag og laugardag, 19. - 20. júní verður haldin alþjóðleg ráðstefna um ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Er það utanríkisráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands sem stendur fyrir ráðstefnunni.
UNIFEM á Íslandi hvetur félaga til að láta þessa ráðstefnu ekki fram hjá sér fara. Við vekjum sérstaka athygli á því að yfirkona UNIFEM í Afganistan, Wenny Kusuma, mun tala á ráðstefnunni. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að fræðast um konur, frið og öryggi sem og að heyra af reynslu fólks sem vinnur á vettvangi!
Á ráðstefnunni verður fjallað hvernig tryggja megi þátttöku kvenna í friðarumleitunum, friðarsamningum og friðaruppbyggingu. Skoðað verður hvaða leiðir eru færar fyrir stjórnvöld, alþjóðastofnanir og félagasamtök til að efla þátttöku og eignarhald kvenna á friðarferlum.
Tíu frummælendur með mikla þekkingu og umfangsmikla reynslu af friðarferlum á átakasvæðum munu segja frá reynslu sinni og hugmyndum um hvernig megi bæta framkvæmd ályktunar öryggisráðs SÞ um konur, frið og öryggi. Að loknum framsögum verða pallborðsumræður og málstofur með þátttöku frummælenda.
Ráðstefnan er öllum opin að kostnaðarlausu og fer fram á ensku. Tekið er á móti skráningum á vefslóðinni www.1325.is þar sem einnig er að finna frekari upplýsingar um ráðstefnuna.