Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size

UNIFEM á Íslandi


Forsíða
Gamaldags föndur, prjón og hekl undir ljúfum tónum Lay Low Prenta Rafpóstur
föstudagur, 06 nóvember 2009

Langar þig til þess að leggja þitt af mörkum í baráttu fyrir réttindum kvenna um allan heim?firildi.jpg

Eða, finnst þér gaman að klippa, líma, prjóna, þæfa, hekla eða bara spjalla við skemmtilegt fólk?

Mánudaginn næstkomandi, 9. nóvember, kl. 17-19 verður föndurstund hjá UNIFEM á Íslandi! Í lok mánaðarins mun UNIFEM á Íslandi halda upp á 20 ára afmælið sitt og eins og í öllum góðum afmælisveislum þarf að skreyta! Þess vegna ætlar fólk af öllum stærðum og gerðum að hittast hjá UNIFEM og föndra saman. Eins og áður leggjum við áherslu á fiðrildaáhrifin, þ.e. að eitthvað lítið getur skapað aðstæður fyrir miklar breytingar annars staðar. Þess vegna ætlum við að búa til helling af fiðrildum!

Lesa meira...
 
UNIFEM-UMRÆÐUR: Að vera kona í Malaví Prenta Rafpóstur
mánudagur, 02 nóvember 2009

Stella Samúelsdóttir og Inga Dóra Pétursdóttir fjalla um líf og stöðu kvenna í Malaví á UNIFEM-UMRÆÐUM laugardaginn 7. nóvember kl 13:00 í húsnæði Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna að Laugavegi 42.

Af hverju að mennta konur?

Stella Samúelsdóttir fjallar um menntun kvenna í Malaví – hver er staðan í dag og hvernig hefur hún verið að þróast. Af hverju er lögð áhersla á að bæta menntun kvenna? Stella starfaði í fimm ár sem verkefnastjóri hjá ÞSSÍ í Malaví. Hún hefur lokið námi í mannfræði, alþjóða samskiptum og opinberri stjórnsýslu.
konur__malav.jpg

Lesa meira...
 
Langtíburtuistan á Menningarnótt Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 20 ágúst 2009
 

UNIFEM á Íslandi býður á ný á framandi kvennaslóðir í LANGTÍBURTUISTAN á Menningarnótt.

img_2691.jpg
 Hljómsveitin Moskvitsj mun leika tónlist úr ýmsum áttum

Langar þig til að kynnast veröld kvenna í þróunarlöndunum? Komdu þá á opið hús á Menningarnótt, laugardaginn 22. Ágúst, þar sem sýndar verða ljósmyndir, búningar og spiluð tónlist frá LANGTÍBURTUISTAN. Þjóðlagasveitin Moskvitsj tekur lagið kl. 15.

Einnig gefst gestum og gangandi færi á

að fræðast um starf UNIFEM víða um heim og ganga í Systralag UNIFEM.

UNIFEM er til húsa í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Laugavegi 42 í Reykjavík. Húsið verður opið milli kl. 13-17.

 

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 25 - 27 af 102
Fiðrildafréttir

Ljóðið - örmynd

ormynd_ljodid.jpg

Dansinn - örmynd

ormynd_dansinn.jpg

Púsluspilið - örmynd

ormynd_pusluspil.jpg

Málverkið - örmynd

ormyndir_malverk.jpg

Tímarit UNIFEM 2008

Tímarit UNIFEM 2008

UNIFEM á Íslandi | Laugavegi 42 - Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 101 Reykjavík | Sími 552 6200 | unifem@unifem.is