Styrkjum konur, því þá styrkjum við heilu fjölskyldurnar
mánudagur, 30 nóvember 2009
Grein sem birtist í Fréttablaðinu þriðjudaginn 24. nóvember 2009
Landsnefnd UNIFEM á Íslandi hefur nú verið starfandi í 20
ár.En hvaða erindi skyldu nú íslenskar
konur eiga við alþjóðleg samtök eins og Sameinuðu þjóðirnar og hví skyldum við
gerast UNIFEM-systur?
Með þátttöku í starfi landsnefndarinnar hérlendis sér maður
fljótt að UNIFEM á Íslandi er miklu meira en enn ein hjálparsamtökin. Þessi
félagssamtök eru ein af 17 landsnefndum UNIFEM í heiminum, en þetta eru frjáls
félagasamtök sem styðja við Kvennasjóð Sameinuðu þjóðanna, UNIFEM.
Grein sem birtist í Morgunblaðinu mánudaginn 23. nóvember 2009.
Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna (Samningur um afnám allrar
mismununar gegn konum) var samþykktur af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
fyrir þrjátíu árum. Sáttmálinn skuldbindur aðildarríki SÞ til að vinna gegn
hvers kyns mismunun gegn konum, hvort sem er af pólitískum, félagslegum,
efnahagslegum eða menningarlegum toga. Aðildarríkjum er þannig gert að tryggja
konum jafnrétti með lögum, auk þess að taka á hinum undirliggjandi félagslega
og pólitíska ójöfnuði sem viðheldur misrétti milli kynjanna.