Skip to content
Narrow screen resolution Wide screen resolution Auto adjust screen size Increase font size Decrease font size Default font size

UNIFEM á Íslandi


Forsíða
Takk! Þið gerðuð afmælishátíðina að veruleika! Prenta Rafpóstur
mánudagur, 30 nóvember 2009

Miðvikudaginn 25. nóvember var haldið upp á 20 ára afmæli UNIFEM á Íslandi með glæsibrag. Afmælishátíð var haldin í Þjóðleikhúskjallaranum og mættu um 140 gestir til veislunnar.  Dagskrá hátíðarinnar var fjölbreytt en fram komu bæði trúðar og forsætisráðherra, skáld og flóttakona, tónlistarkonur og hugsjónakonur svo eitthvað sé nefnt!

 _mg_9876a1.jpg
Stór hluti þeirra sjálfboðaliða sem aðstoðuðu á afmælishátíðinni ásamt stjórnarkonum í UNIFEM á Íslandi


Afmælishátíðin hefði ekki orðið að þessari glæsilegu samkomu án hjálpar fjölmargra sjálfboðaliða og fyrirtækja. Framlög þeirra voru af öllum stærðum og gerðum; gefin voru vinnuframlög, vörur og afslættir svo gefin séu dæmi. Allt skiptir þetta sköpum fyrir samtök eins og UNIFEM sem leggja sig fram um að sinna verkefnum sínum og viðfangsefnum af alúð og elju án þess að kosta til of miklu. Hugmyndafræðin er alltaf sú að geta styrkt verkefni í fátækustu löndum heims með sem myndarlegustum hætti. Þess vegna skiptir framlag hvers og eins máli.

Lesa meira...
 
Kvenlíkaminn vígvöllur í stríði – konur, friður og öryggi Prenta Rafpóstur
mánudagur, 30 nóvember 2009

Grein sem birtist í Fréttablaðinu fimmtudaginn 26. nóvember 2009.

Kerfisbundnar nauðganir á konum í svokölluðum „nauðgunarbúðum“ voru liður í þjóðernishreinsunum serbneska stjórnarhersins á múslimum í Bosníu árið 1992-1995. Talið er að um 500 þúsund konum og stúlkum hafi verið nauðgað þegar þjóðarmorðin í Rúanda voru framin árið 1994.

Kynbundið ofbeldi hefur fylgt stríði frá örófi alda. Eftir þjóðarmorðin í Bosníu og Rúanda urðu hins vegar þau vatnaskil að stofnaðir voru sérstakir dómstólar til að dæma stríðsglæpamenn og voru nauðganir meðal kæruatriða.

Lesa meira...
 
Jöfn tækifæri og bjartari framtíð Prenta Rafpóstur
mánudagur, 30 nóvember 2009
Grein sem birtist í Morgunblaðinu miðvikudaginn 25. nóvember 2009.

Fyrir tuttugu árum tóku röskar konur sig saman og stofnuðu Landsnefnd UNIFEM á Íslandi. Þær höfðu sömu hugsjónir að leiðarljósi og fjöldi réttsýnna einstaklinga um allan heim: Að bæta stöðu kvenna þar sem réttindi þeirra eru ekki virt að fullu, tækifæri þeirra eru takmörkuð og frelsi ekki virt.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 19 - 21 af 102
Fiðrildafréttir

Ljóðið - örmynd

ormynd_ljodid.jpg

Dansinn - örmynd

ormynd_dansinn.jpg

Púsluspilið - örmynd

ormynd_pusluspil.jpg

Málverkið - örmynd

ormyndir_malverk.jpg

Tímarit UNIFEM 2008

Tímarit UNIFEM 2008

UNIFEM á Íslandi | Laugavegi 42 - Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi | 101 Reykjavík | Sími 552 6200 | unifem@unifem.is