UNIFEM á Íslandi leitar að starfskrafti í nýtt starf. Um er
að ræða hálft starf í sex mánuði sem verður að fullu starfi um miðbik árs 2010.
Helstu verkefni: Hugmyndavinna, áætlanagerð og framkvæmd
verkefna á sviði fjáröflunar. Auk þessa, aðstoð við önnur tilfallandi verkefni
á skrifstofu UNIFEM.
Leitað er að einstaklingi með háskólapróf. Reynsla og/eða
þekking af fjáröflun eða kynningar- og markaðsstarfi er æskileg. Áhugi og
þekking á þróunarmálum, jafnréttismálum og málstað UNIFEM er kostur.
Viðkomandi þarf að vera opinn, framfærinn, hæfileikaríkur í
samskiptum, víðsýnn, skipulagður og skapandi.
Vinnutími sveigjanlegur.
Ferilskrá og kynningarbréf sendist með tölvupósti á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
og er umsóknarfrestur
til 20. janúar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun febrúar.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi í síma 552-6200 eða á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
.
UNIFEM á Íslandi - Laugavegi 42 - 101 Reykjavík
Kvennasáttmálinn 30 ára - Ný útgáfa
þriðjudagur, 22 desember 2009
Þann 18. desember síðastliðinn varð Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 30 ára. Í tilefni dagsins gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands út nýtt fræðslurit um Kvennasáttmálann, í samstarfi við UNIFEM á Íslandi, Jafnréttisstofu, félags- og tryggingamálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti.
Með útgáfu bókar um Kvennasáttmálann er ætlunin að stuðla að aukinni þekkingu á réttindum kvenna og þar með stuðla að samfélagi þar sem konur njóta jafnréttis, mannhelgi, borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda án ótta um líf og afkomu.
Nálgast má bókina á skrifstofu UNIFEM á Íslandi, Mannréttindaskrifstofu Íslands og víðar.
Í tilefni af 20 ára afmæli UNIFEM á Íslandi gaf félagið út afmælisrit þann 25. nóvember síðastliðinn. Í afmælisritinu er fjallað um starfsemi UNIFEM á alþjóðavísu, hvaða hindranir mæta konum og hvað UNIFEM gerir til að bæta stöðu kvenna víðs vegar um heim. Einnig er rakin saga UNIFEM á Íslandi í stuttu máli auk þess sem þar er birt ljóð sem Auður Jónsdóttir hefur tileinkað UNIFEM og ávarp Vigdísar Finnbogadóttur. Afmælisritinu ritstýrði Margrét Jochumsdóttir og umbrot annaðist Linda Loeskow. Kunnum við hjá UNIFEM þeim báðum bestu þakkir fyrir frábært framlag til félagsins. Það var samstarfsaðili UNIFEM, Prentsmiðjan Oddi, sem prentaði og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir lögðu útgáfunni lið með styrktarlínu. Afmælisritið hefur nú verið sent til allra félaga í UNIFEM og UNIFEM-Systra að vonum þeim til gagns og gamans. Afmælisritið má skoða á pdf formati með því að smella hér . Einnig er hægt að sækja sér eintak á skrifstofu UNIFEM eða hafa samband og fá það sent.